Fimmta barnið
Lesa meiraCarpe diem
Lesa meiraÓmynd
Lesa meira
Ómynd
Ómynd er þriðja glæpasaga Eyrúnar Ýrar Tryggvadóttur fyrir fullorðna og fjallar, líkt og hinar fyrri, um blaðakonuna Andreu. Hinar fyrri eru Hvar er systir mín? (2008) og Fimmta barnið (2009) sem báðar voru tilnefndar til Blóðdropans, verðlauna Hins íslenska glæpafélags og eru fínustu glæpasögur.
Carpe diem
Í unglingaskáldsögu þeirra Eyrúnar Ýrar Tryggvadóttur og Kristjönu Maríu Kristjánsdóttur, Carpe diem, segir frá Birnu sem er nýflutt inn til móðurömmu sinnar ásamt móður sinni og litla bróður eftir að fjölskyldan missti leiguíbúð sína í Breiðholtinu vegna vanskila. Mamman drekkur mikið og hugsar lítið um heimilið og börn sín, enda kemur fram að hún hugi aldrei að kvöldmatnum fyrr en klukkan sé að verða hálf sjö. Föður sinn hefur Birna ekki séð árum saman. Hallgrímur, hin aðalsöguhetja Carpe diem, er öllu lukkulegri. Hann á prýðisgóða foreldra og móður sem er frábær kokkur. Birna og Hallgrímur taka fyrst hvort eftir öðru á grímuballi í skólanum, Birna í rifnum svörtum ruslapoka en Hallgrímur í rándýrum sjóræningjabúningi. Þau falla hvort fyrir öðru en ýmislegt kemur í veg fyrir að þau geti lifað hamingjusöm til æviloka.
Fimmta barnið
Áhrif norrænna glæpasagna eru greinileg í sögu Eyrúnar Ýrar Tryggvadóttur, Fimmta barnið. Annarsvegar er söguhetja hennar frá fyrri bók, Andrea, orðin blaðakona fyrir síðdegisblað og minnir í háttum nokkuð á hina horuðu og taugaveikluðu Anniku Bengtzon sem lesendur norrænna krimma þekkja úr verkum Lizu Marklund og hinsvegar fjallar sagan um sölu á börnum til ættleiðingar, en um það fjallar einmitt danska framlagið til Norrænu glæpasagnaverðlaunanna frá í fyrra, Drengen i kufferten eftir Lene Kaaberbøl og Agnete Friis.