Beint í efni

Eitt satt orð

Eitt satt orð
Höfundur
Snæbjörn Arngrímsson
Útgefandi
Bjartur-Veröld
Staður
Reykjavík
Ár
2022
Flokkur
Skáldsögur

Um bókina

Á köldu októbersíðdegi sigla Júlía og Gíó, maður hennar, saman út í hinn sögufræga Geirshólma í Hvalfirði vegna verkefnis sem Júlía hefur tekið að sér. Hún snýr hins vegar þaðan aftur ein síns liðs. Hvað gerðist í kjölfar þess að hún yfirgaf manninn sinn á þessu eyðiskeri? Og svo virðist maðurinn horfinn af yfirborði jarðar.

Hvernig getur staðið á því að hann er ekki lengur á eyjunni þegar hún vitjar hans aftur? Og hvernig á hún að skýra það fyrir yfirvöldum að maðurinn virðist horfinn.

Eitt satt orð er fyrsta spennusaga Snæbjörns Arngrímssonar. Áður hefur hann skrifað þrjár skáldsögur fyrir börn auk þess að hafa hlotið þýðingarverðlaun og verið mikilvirkur bókaútgefandi bæði heima og erlendis.

Fleira eftir sama höfund

Dularfulla styttan og drengurinn sem hvarf

Lesa meira

Rannsóknin á leyndardómum Eyðihússins

Lesa meira