Beint í efni

100 ljóð

100 ljóð
Höfundur
Geirlaugur Magnússon
Útgefandi
Skrudda
Staður
Reykjavík
Ár
2019
Flokkur
Ljóð

Um bókina

Geirlaugur Magnússon (1944–2005) er tvímælalaust eitt af helstu skáldum sinnar kynslóðar. Hann sendi frá sér 17 ljóðabækur sem allar hafa verið ófáanlegar um nokkurt skeið og er því mikill fengur að þessu hundraðljóða úrvali.

Geirlaugur fór að mörgu leyti sínar eigin leiðir í ljóðlist sinni, málfar hans er meitlað og ljóðmyndir hans geta á stundum verið myrkar og liggja ekki ávallt í augum uppi en gefa lesandanum því meira til að velta vöngum yfir. Hann var einnig mikilvirkur ljóðaþýðandi, einkum úr pólsku og eftir hann liggja þrjú söfn pólskra ljóða.

Þetta úrval hefur að geyma ljóð úr öllum hans bókum og ætti að gefa lesendum einstakt tækifæri til að kynnast ljóðheimi Geirlaugs Magnússonar.

 

Fleira eftir sama höfund

Ítrekað

Lesa meira

Safnborg

Lesa meira

Afl þeirra hluta

Lesa meira

Án tilefnis

Lesa meira

Áleiðis áveðurs

Lesa meira

Ljóð í Cold was that Beauty...

Lesa meira

Hreytur

Lesa meira

Ljóð í Wortlaut Island

Lesa meira