Ariasman: frásaga af hvalföngurum
Lesa meira
Ariasman: frásaga af hvalföngurum
Samskiptaleysi er lykilatriði í Ariasman, því bókin lýsir því hvernig skortur á samskiptum, og slæm samskipti sem komin eru til af ýmsum ástæðum, verða þess valdandi að fjöldamorð eru framin: en eins og Koivukari bendir á eru Spánverjavígin (árið 1615), viðfangsefni skáldsögunnar Ariasman, ekkert annað en fjöldamorð. Baskneskum hvalföngurum, skipsbrotsmönnum við strandir Íslands, var einfaldlega slátrað, og hvort sem lýsingarnar (teknar úr samtímaskrifum) eru orðum ýktar eða ekki er ljóst að hér er um að ræða andstyggilegt illvirki.