Arfurinn: spennusaga um kjarkleysi og breyskleika
Lesa meira
Arfurinn
Útdráttur söguþráðar Arfsins sem birtist á baksíðu bókarinnar vekur sannarlega forvitni. Aðalsögupersóna bókarinnar, Ásgeir, er lentur í blindgötu eftir skilnað og vinnur við sölumennsku sem hann sýnir lítinn áhuga. Hann fær dularfullt bréf frá lögfræðistofu og í ljós kemur að honum hefur tæmst arfur eftir afa sinn sem allir álitu löngu látinn. En svo hafði hann bara verið á lífi öll þessi ár, í felum í Argentínu líkt og margir fyrrverandi nasistar. Afinn hafði að vísu ekki verið nasisti en allavega verið í SS sveitunum og unnið að ýmsum verkefnum á vegum þýska hersins á styrjaldarárunum.