Beint í efni

Boxarinn

Boxarinn
Höfundur
Úlfar Þormóðsson
Útgefandi
Veröld
Staður
Reykjavík
Ár
2012
Flokkur
Skáldsögur


Um Boxarann:



Hér segir sonur sögu föður síns sem var maður af margri gerð, í senn heillandi og haldinn þrúgandi óeirð og mikilli athafnaþrá. Inn í frásögnina fléttast litríkar örlagasögur ýmissa ættingja; misindismanna, sérstaæðra kvenna, launbarna og ungs fólks sem þurfti að þola sumt af því versta sem lífið skapar mönnum.



Úr Boxaranum:



Eitt af því sem lá í loftinu var að þessi bróðir þinn væri ofbeldismaður á bak við luktar dyr heimilisins. Eftir að hann flutti norður var því hvíslað að hann lemdi konuna sína, danglaði ekki bara í hana, heldur berði hana eins og harðfisk. Lengi hét þetta bara slúður. Svo gerðist það eina nöturlega vetrarnótt í svartamyrkri, skafrenningi og byl, að hann lét barsmíðar ekki duga heldur henti henni út í veðrið. Hún var í náttfötum einum klæða. Sem betur fór komst hún fljótt í skjól hjá nágrönnum sínum. Morguninn eftir fór hún heim. Til hans.



Ofbeldi er margbreytilegt eins og djöfullinn sjálfur. Það var mér sagt einhverju sinni, þegar hann bróðir þinn var að fást við hross, hefðu komið til hans hestamenn í útreiðartúr. Þeir voru hreifir og létu góðyrði falla um hrossin hans. Mest þótti þeim koma til hálftaminnar merar og spurðu hvort þeir mættu reyna hana. Hann hélt það nú. „Og kerlinguna ef þið gefið í staupinu, hún er heima!“ svaraði hann og bar sig eftir pelanum.



Þetta þykir ekki öllum stórvægileg karlremba. Ef til vill segir einhver að þetta sé bara belgingur. Hvaða orð sem menn vilja hafa um það er þetta tilbrigði við annað og meira ofbeldi. Það argasta. Þá tegund sem ekki er unnt að hafa orð um því að þar er enginn til frásagnar nema sá sem fyrir því verður og hinn sem beitir því. Sá síðarnefndi getur sjaldan eða aldrei talist trúverðugur.



Því veldur siðblindan.



(41-2)


Fleira eftir sama höfund

Sódóma - Gómorra

Lesa meira

Sambönd: eða blómið sem grær yfir dauðann

Lesa meira

Ákæran: Sóknarnefndin gegn Séra Páli

Lesa meira

Þrjár sólir svartar

Lesa meira

Syngjandi fiskur

Lesa meira

Á fullu tungli

Lesa meira

Hrapandi jörð: Skáldsaga um Tyrkjaránið

Lesa meira

Rauð mold: Skáldsaga um Íslendinga í Barbaríu

Lesa meira

Hallgrímur: Skáldsaga um ævi Hallgríms Péturssonar

Lesa meira