Verðlaun
tilnefningar
2020 - Maístjarnan: Vellankatla
Brunagaddur
Lesa meiraBlágil
Lesa meira
Brunagaddur
Bókin hefur að geyma margvísleg fágæt orð og heiti yfir ýmis fárviðri og kuldaveður og ljáir þetta henni afar þjóðlegan blæ. Heiti bókarinnar, Brunagaddur, er eitt af þessum orðum og í því sameinast meginandstæður íslenskrar náttúru, bruni og gaddur eða eldur og ís, en orðið brunagaddur merkir nístandi kuldi.
Ljóðað á glugga
Hefðin fyrir sjálfsútgáfum ljóðskálda er bæði virðuleg og löng. Annarsvegar markast hún væntanlega af markaðsvandamálum – útgáfa ljóðabóka er sjaldnast arðbær – hinsvegar er því ekki að neita að í krafti sjálfsútgáfu hafa höfundar alvald yfir verki sínu, þar á meðal útlitshönnun þess og dreifingu. Þetta hefur síðan skapað aðra hefð, þá að leggja metnað í umgjörð sem hæfir útgáfunni með einum eða öðrum hætti. Sjálfsútgáfur, og aðrar útgáfur utan formlegra forlaga, eru því oft sérlega eigulegir gripir, oft persónulegri og jafnvel hversdagslegri.