Í frostinu
Lesa meira
Í frostinu
Það hefur varla farið framhjá þeim sem eitthvað fylgist með leikhúslífi á Íslandi, að Jón Atli Jónasson hefur skipað sér á bekk sem eitt helsta leikskáld landsins. Á dögunum sendi hann frá sér sitt annað prósaverk, stutta skáldsögu sem ber nafnið Í frostinu en árið 2001 kom út smásagnasafnið Brotinn taktur. Í frostinu gerist um hávetur í Reykjavík og segir frá Drífu, einstæðri móður með eitt barn. Hún vinnur á hjúkrunarheimili fyrir aldraða sem ber hið gildishlaðna nafn Kvöldroðinn.