Beint í efni

Gestahöfundur frá Bókmenntaborginni Melbourne

Ástralski rithöfundurinn Ronnie Scott verður gestahöfundur Bókmenntaborgarinnar í september. Hann var valinn úr hópi rúmlegra 100 umsækjenda frá Bókmenntaborgum UNESCO.

Bókmenntaborgin Reykjavík býður árlega höfundi frá annarri Bókmenntaborg UNESCO til mánaðarlangrar dvalar í Reykjavík. Gestadvöl og samskipti höfunda þvert á landamæri eru meðal lykilverkefna Bókmenntaborga UNESCO. Þetta er liður í að auka bókmenntatengsl milli borganna og opna fyrir skapandi samræðu höfunda þvert á landamæri. Rithöfundi eða þýðanda er boðið að dvelja í einn mánuð í Gröndalshúsi og fylgir dvölinni kynning á íslensku orðlistalífi. Einnig gefst gestinum tækifæri til að kynna sig fyrir íslenskum lesendum og áhugafólki um orðlist.

Ronnie Scott

Ástralski rithöfundurinn Ronnie Scott frá Bókmenntaborginni Melbourne verður gestur Reykjavíkur í september næstkomandi. Hann var valinn úr hópi 106 umsækjenda víðs vegar að úr heiminum.

Ronnie Scott er dósent í ritlist við RMIT háskóla í Melbourne. Skáldsaga hans, The Adversary (2020) var á styttri lista tilnefndra verka til Queensland bókmenntaverðlaunanna og var einnig tilnefnd til verðlaunanna Australian Literature Society Gold Medal. Hann hefur skrifað tvær bækur fyrir Listasafn Viktoríufylkis (National Gallery of Victoria) og einnig sérritið Salad Days sem var gefið út af Penguin (2014). Þá rannsakar hann og skrifar um myndasögur fyrir Folio: Stories of Contemporary Australian Comics.

Í Reykjavík hyggst Ronnie vinna að skáldsögu sem hverfist um götulist og hinsegin sögu. Um væntanlega heimsókn sína segir Ronnie:

„Ég hlakka mikið til að dvelja og vinna í Gröndalshúsi í september. Það er áhugavert að hugsa um hlutverk Melbourne og Reykjavíkur sem Bókmenntaborgir UNESCO, báðar búa þær yfir merkri sögu og eru alþjóðlegar miðstöðvar ritlistar í dag, hvor með sínum hætti. Ég get ekki beðið eftir því að dvelja í Reykjavík til að komast að því hvernig borgirnar tengjast, eru ólíkar og spegla hvor aðra, og að skrifa skáldskap í þessu sögulega húsi í mánuð, vonandi með slökkt á símanum eftir tvö sítengd ár í heimsfaraldri.“

Ronnie er þriðji höfundurinn frá Bókmenntaborgum UNESCO sem Bókmenntaborgin býður hingað, fyrri gestir eru þær Chantal Ringuet frá Quebéc í Kanada (2019) og Fiona Khan frá Durban í S-Afríku (2021).