Góða nótt, sofðu rótt
Lesa meira
Fjórar þýddar ævintýrabækur
Ég er alin upp við linnulaus ævintýri. Afi og amma ýmist sögðu mér sögur eða lásu fyrir mig og mamma sömuleiðis bæði las fyrir mig og spann upp ævintýri. Stundum teiknaði hún eða málaði myndir líka en ekki man ég til að það hafi verið sérlega mikið til af myndskreyttum sögum fyrir börn. Barbapabbi jú, og svo voru myndir með múmínálfunum, en mikið held ég að ég hefði glaðst yfir öllum þeim margvíslegu fallega myndskreyttu sögum fyrir yngstu lesendurna sem nú eru í boði.