Beint í efni

Elísabet Kristín Jökulsdóttir

Æviágrip

Elísabet Kristín Jökulsdóttir er fædd í Reykjavík 16. apríl 1958. Hún ólst upp á Seltjarnarnesi og í Reykjavík og dvaldi í eitt ár í Grikklandi sem barn. Hún lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1987 og hefur sótt námskeið í handritaskrifum hjá Kvikmyndasjóði og tekið þátt í Höfundasmiðju Leikfélags Reykjavíkur. Elísabet hefur unnið ýmis störf til sjós og lands, afgreiðslustörf, verið módel hjá Myndlistarskóla Reykjavíkur, stundað byggingarvinnu, unnið í frystihúsum, verið háseti á bát og ráðskona á Ströndum. Einnig hefur hún verið blaðamaður, unnið þætti fyrir útvarp, verið aðstoðarleikstjóri í Þjóðleikhúsinu og haldið fyrirlestra um örsöguskrif í framhaldsskólum. 

Fyrsta bók Elísabetar, ljóðabókin Dans í lokuðu herbergi, kom út árið 1989 og síðan hefur hún sent frá sér ljóð, sögur og skáldsögur. Hún hefur skrifað fjölda leikrita sem sett hafa verið upp hér á landi og erlendis og framið ýmsa gjörninga sem hafa meðal annars birst í Ríkissjónvarpinu. Ljóð hennar hafa birst í safnbókum og tímaritum hér heima og erlendis. Elísabet hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bókina Aprílsólarkuldi árið 2020 og árið 2018 fékk hún styrk úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins. Elísabet hlaut Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna fyrir ljóðabókina Ástin ein taugahrúga: Enginn dans við Ufsaklett árið 2015. Hún var einnig tilnefnd til menningarverðlauna DV og bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir sömu bók.