Beint í efni

Auður Jónsdóttir

Æviágrip

Auður Jónsdóttir er fædd 30. mars 1973. Hún starfar sem rithöfundur og sjálfstæður blaðamaður og hefur skrifað greinar, pistla og viðtöl fyrir ýmis tímarit og dagblöð.

Smásaga hennar, „Gifting“, birtist í tímaritinu Andblæ haustið 1997 og fleiri smásögur eftir hana hafa birst í blöðum og safnbókum síðan. Fyrsta skáldsaga Auðar, Stjórnlaus lukka (1998), var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 1998. Hún hefur síðan sent frá sér fleiri skáldsögur, auk bóka fyrir börn og unglinga, meðal annars bókina Skrýtnastur er maður sjálfur (2002) þar sem hún dregur upp mynd af afa sínum, Halldóri Laxness. Skáldsaga Auðar, Fólkið í kjallaranum, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2004 og bækurnar Tryggðarpantur (2006) og Stóri skjálfti (2015) voru tilnefndar til sömu verðlauna. Auður var valin leikskáld Borgarleikhússins 2009.