Beint í efni

Ljósagangur

Ljósagangur
Höfundur
Dagur Hjartarson
Útgefandi
JPV útgáfa
Staður
Reykjavík
Ár
2022
Flokkur
Skáldsögur

Um bókina

Á göngubrúnni yfir Hringbraut heyrist æ oftar undarlegur niður. Er þetta hönnunargalli? Eða er þetta niður aldanna? Í kjölfarið skjóta upp kollinum dularfull fyrirbæri sem virðast í engu samræmi við lögmál eðlisfræðinnar. Vísindamenn standa á gati. Hlutabréfamarkaðurinn tekur dýfu. Ljóðabækur yfirtaka metsölulistana. Kettir hverfa. Ljósagangur leikur um loftin. Og ástin blómstrar hjá ungu pari í Hlíðunum.

Þegar eðlisfræðin og ljóðið mætast verður til Ljósagangur. Þetta er vísindaskáldsaga, fantasía, spennusaga en umfram allt ástarsaga.

Fleira eftir sama höfund

Við erum ekki morðingjar

Lesa meira