Um bókina
Ce matin eftir Junko Nakamura í þýðingu Sverris Norland.
Hundurinn Lubbi vaknar af nætursvefni og vappar inn í svefnherbergi til herra Bangsa til að ýta við honum. Bangsi er í essinu sínu eftir góðan nætursvefn. Þeir félagar fá sér morgunverð: gómsæt brauðsneið með hunangi veitir herra Bangsa meira að segja innblástur svo að hann seilist eftir minnisbókinni sinni. Á meðan lýsir morgunsólskinið upp eldhúsið og veröldina fyrir utan gluggann. Á morgnana er allt svo fallegt og ferskt, fullt af möguleikum!