Beint í efni

Bláir draumar

Bláir draumar
Höfundur
Megas
Útgefandi
Grammið
Staður
Reykjavík
Ár
1988
Flokkur
Hljómdiskar / Hljómplötur

Ásamt Bubba Morthens. Lög Megasar voru endurútgefin árið 2002 á plötunni Englaryk í tímaglasi.

Lagalisti:

01. Filterslaus Kamelblús
02. Einum of heví
03. Seinasti dagurinn
04. Flæðarmál
05. Ég bið að heilsa
06. Tvær stjörnur
07. Ég dansa tangó
08. Tíminn
09. Aðeins smekksatriði
10. Menn að hnýta snörur
11. Vatnsrennibrautin
12. Eitt til fimmtán glös
13. Litlir sætir strákar
14. Hann er svo blár

Textabrot úr Bláum draumum:

Einum of heví

Ég var á rölti einn um þessi illskulegu stræti
þegar allt í einu birtist hún framundan mér
ég var að pæla í að greikka sporið til að kasta á hana kveðju
en ég klikkaði á því lagði ekki í það fannst ég alltof ber
hún var í örpilsi og netsokkum
sem náðu uppá mið læri
hún var í næfurþunnum bol hún vissi rétt rúmlega af sér
en hún var einum of heví
og ég hélt mér barasta á mottunni

Ég var einn á róli á rúntinum dántán
þá rak ég augun í hann svona krúttlega fattan
þér að segja þá virtist ekki úr vegi að ganga hann uppi
en ég vílaði það fyrir mér fannst ég eiga heima fyrir aftan
hann var í beinu sambandi
hann var sjáandi með stíl
hann var í sveiflu uppávið og leið með skærum glans upp brattann
og hann var einum of heví
og ég hélt mér bara fast á mottunni

Ég var einsamall á flökti fjarri mannabyggðum
og mér fannst þá sem ég sæi einhvern rogast með hrís
ég hugðist kanna málið og ég hélt með mestu varúð
í humáttina á eftir og varð þess þá vís
að þetta var skugginn af sjálfum mér
já ég sá það fyrir rest
og ég sagði í ofboði plís plís plís
því þetta var einum of heví
og ég sem hélt ég myndi varla nenna
en það bera allir hrísvönd í bálköstinn sinn
og svo brenna þeir og brenna og brenna og brenna og brenna

Fleira eftir sama höfund

Megas – textar 1966-2011

Lesa meira

Drög að sjálfsmorði

Lesa meira

Haugbrot: glefsur úr neó-reykvískum raunveruleika

Lesa meira

Á bleikum náttkjólum

Lesa meira

Drög að upprisu

Lesa meira

Englaryk í tímaglasi

Lesa meira

Far ... þinn veg

Lesa meira

Fláa veröld

Lesa meira

Fram og aftur blindgötuna

Lesa meira