Um bókina
Korpúlfsstaðir voru fullkomnasta kúabú á Norðurlöndum og þótt víðar væri leitað. Sá sem reisti þetta býli hét Thor Jensen. Hann kom hingað kornungur danskur maður, varð íslenskari en margur Íslendingurinn, dreymdi stóra drauma og lét þá rætast. Hann var einn af frumkvöðlum síldarútvegsins og stofnaði Kveldúlf sem talinn var eitt stærsta útgerðarfyrirtæki í heimi í einkaeign þegar hæst stóð. Á Korpúlfsstöðum vann Thor Jensen mesta stórvirki einstaklings í landbúnaði á Íslandi sem um getur. Síðar eignaðist Reykjavíkurborg jörðina og rak þar blómlegt bú.