Eldsbirta
Lesa meira
Eldsbirta og Mamma þarf að sofa
Feminískur lestur og greining frá kynjuðu sjónarhorni – er það ekki eitthvað gamaldags? Eru það ekki önnur og meira aðkallandi viðfangsefni sem við þurfum að takast á við í dag? Í ljósi nýlegrar lagasetningar og banni við fóstureyðingum í stórum hluta Bandaríkjanna má velta fyrir sér hvort að þessi málefni séu ekki ef til vill einna mest aðkallandi í dag. Kvenréttindi eru mannréttindi því þau eiga jú við helming jarðarbúa og auðvitað hinn helminginn líka ef betur er að gáð. Og þó að sprenging hafi orðið í femínískri bókmenntagreiningu fyrir mörgum árum,