Moli og eggið
Lesa meiraVetrardagur
Lesa meira
Fimm fallega myndskreyttar bækur fyrir börn
Fallega myndskreyttar bækur fyrir börn er fyrirbæri sem virðist fara í vöxt, allavega rekur mig ekkert sérstaklega minni til að slíkur fjöldi hafi verið mér aðgengilegur á sínum tíma. Þó minnist ég Barbapabba með mikilli hlýju, hef verið staðfastur aðdáandi allar götur síðan og fagna því ákaflega að nýjum kynslóðum skuli nú hafa hlotnast sú gleði að alast um með bleika Barbapabba og hans litríku fjölskyldu.