Beint í efni

Þórunn Jarla Valdimarsdóttir

Æviágrip

Þórunn Jarla Valdimarsdóttir er fædd 25. ágúst 1954 og er Reykvíkingur. Hún lærði sagnfræði í Lundi Svíþjóð árið 1973-1974 og sögu og myndlist við Instituto Allende í Mexíkó árið 1977-1978. Hún lauk Cand Mag-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands 1983 og hefur síðan fengist við ritstörf. Eftir hana liggja tuttugu bækur – skáldsögur, ljóðabækur, ævisögur og sagnfræðirit – auk fjölda greina og þátta fyrir útvarp og sjónvarp. Barnævisöguna Sól í norðurmýri (1993) og nóvelluna Dag kvennanna (2010) skrifaði hún með Megasi.

Fyrsta skáldsaga Þórunnar, Höfuðskepnur, kom út árið 1994. Skáldsagan Alveg nóg var tilnefnd til Menningarverðlauna DV 1997 og Stúlka með fingur hlaut síðan Menningarverðlaun DV árið 1999 og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2001. Skáldsögur Þórunnar Kalt er annars blóð (2007) og Mörg eru ljónsins eyru (2010) eru glæpasögur sem gerast í samtímanum en byggja báðar á Íslendingasögum, sú fyrri á Njálu og sú seinni á Laxdælu. Þær voru báðar tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fagurbókmennta, en Þórunn hefur einnig hlotið þar tilnefningar í flokki fræðibóka fyrir bækurnar Snorra á Húsafelli: saga frá 18. öld (1989), Til móts við nútímann (4. bindi Kristni á Íslandi, 2000) og Upp á sigurhæðir: saga Matthíasar Jochumssonar (2006).

Þórunn er búsett í Reykjavík.

Forlag: JPV útgáfa.