Vampíra
Lesa meira
Vampíra
Ég hef öruggar heimildir fyrir því að skáldsagan sé dauð. Sem og ljóðið. Hvort dauðsföllin tengjast á einhvern hátt veit ég ekki, fréttin lét þess ekki getið og nú bíð ég bara eftir því að heyra af andláti hennar sömuleiðis. Við sem viljum lesa sögur af pappír þurfum þó ekki að líða skort vegna þess að atorkusamir höfundar og listamenn halda áfram að skaffa okkur myndasögur.