Beint í efni

Pétur Gunnarsson

Æviágrip

Pétur Gunnarsson fæddist 15. júní 1947 í Reykjavík. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1968 hélt hann utan til náms í Frakklandi og lauk Meistaraprófi í heimspeki (maitrise) frá Université d'Aix-Marseille árið 1975.

Pétur hefur tekið þátt í ýmsum samstarfsverkefnum, hann samdi t.d. leikritið Grænjaxlar árið 1977 fyrir Þjóðleikhúsið í samvinnu leikara og Spilverks þjóðanna. Hann samdi texta á breiðskífunni Lög unga fólksins sem út kom 1977 og barnaleikritið Krókmakarabærinn sama ár í samvinnu við Leiklistarskóla Íslands. Pétur hefur jafnframt unnið margvíslegt efni fyrir útvarp og sjónvarp. Hann skrifaði t.a.m. handrit að leikinni heimildamynd um Halldór Laxness 1988.

Pétur átti sæti í stjórn Alliance française á árunum 1977-1981, þar af sem forseti 1980 -1981. Hann sat jafnframt í stjórn félags áhugamanna um bókmenntir 1988 - 1990 og var í ritnefnd Tímarits Máls og menningar um árabil. Pétur var formaður Rithöfundasambands Íslands 2006 - 2010. Pétur hefur sent frá sér aragrúa greina um bókmenntir og menningarmál í fagtímaritum, skrifað um þjóðmál og menningarmál í dagblöð og haldið erindi á margvíslegum vettvangi.

Fyrsta ljóðabók Péturs, Splunkunýr dagur, kom út 1973 en áður höfðu birst ljóð eftir hann í Tímariti Máls og menningar. Skáldsagan Punktur, punktur, komma, strik leit svo dagsins ljós 1976. Þorsteinn Jónsson kvikmyndaleikstjóri gerði eftirminnilega kvikmynd eftir bókinni sem naut mikilla vinsælda. Bókin var sú fyrsta af fjórum um söguhetjuna Andra en síðasta Andrabókin, Sagan öll, var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 1987. Ævisagu Péturs um Þórberg Þórðarson, ÞÞ - Í fátæktarlandi, hlaut Viðurkenningu Hagþenkis 2009. Pétur hefur einnig fengist við þýðingar og hlaut þýðing hans á Frú Bovary eftir Gustave Flaubert Menningarverðlaun DV 1996. Árið 2023 hlaut Pétur Íslensku þýðingaverðlaunin fyrir þýðingu sína á Játn­ing­unum eft­ir Jean-Jacqu­es Rous­seau.

 

Mynd af höfundi: Jóhann Páll Valdimarsson.

Ritþing um Pétur Gunnarsson 13. nóvember 2010