Blóðengill
Lesa meira
Blóðengill
Blóðengill er önnur skáldsaga Óskars Guðmundssonar en hann þreytti frumraun sína árið 2015 með Hilmu. Í Blóðengli, sem er beint framhald fyrri skáldsögu Óskars, fá lesendur að endurnýja kynni sín við óþreytandi og ómótstæðilegu lögreglukonuna Hilmu sem tórir enn eftir átök fyrstu bókarinnar. Aðeins vika líður milli bókanna og Hilma er nýkomin aftur til Íslands eftir átakanlega ferð til Oslóar þar sem hún kljáðist við erkióvin sinn, glæpaforingjann Vladas. Hún er gjörsamlega uppgefin en skyldan kallar þegar símtal berst Neyðarlínunni á snjóþungri desembernóttu frá sex ára stúlku sem tilkynnir að mamma hennar sé dáin. Þegar lögreglan kemur á staðinn eru mæðgurnar horfnar sporlaust úr blóði drifinni íbúðinni.