Syndaflóð
Lesa meira
Syndaflóð
Syndaflóð er óvægin bók, frásögnin hröð, miskunnarlaus og afskaplega spennandi. Sagan hefst þegar Malcolm nokkur Benke finnst myrtur í hægindastól á heimili sínu og á litla fingri er hann með giftingarhring látinnar dóttur sinnar. Hringurinn reynist vera lykillinn að lausn málsins og tenging milli þessa glæpar og annarra gjörólíkra glæpa sem verða á vegi rannsóknarlögreglumannanna Alex Recht og Fredriku Bergman. Meðfram frásögninni af rannsókn þeirra fær lesandinn innsýn í líf annarra persóna – þar á meðal fjölskyldu sem hefur verið lokuð inni í afskekktu húsi gegn vilja sínum og eftir því sem sögunni vindur fram verða tengslin milli þessara ólíku söguþráða skýrari og jafnframt óhugnanlegri.