Greinar
Umfjöllun um einstök verk
Blótgælur
Úlfhildur Dagsdóttir "Bjart er yfir blótgælum"
Bókmenntavefurinn, umfjöllun um bækur, sjá hér
Verðlaun
Verðlaun og viðurkenningar
2021 - Fjöruverðlaunin í flokki fagurbókmennta: Hetjusögur
Hetjusögur
Lesa meiraStormwarning
Lesa meiraBlótgælur
Lesa meiraStormviðvörun
Lesa meira
Þungi eyjunnar
Lesa meira
Stormviðvörun
Ég iðaði af spenningi þegar ég frétti af því að Kristín Svava Tómasdóttir væri að gefa út sína þriðju ljóðabók Stormviðvörun. Ég kolféll fyrir stíl Kristínar Svövu fyrir átta árum þegar fyrsta ljóðabók hennar Blótgælur (2007) kom út og svo aftur í Skrælingjasýningunni (2011). Ljóðin einkenndust af frelsi, ádeilu og orðtaki ungu kynslóðarinnar. Þetta kann að hljóma klisjukennt en Kristín Svava skrifar án tilgerðar og orðaflúrs. Djammið, misheppnaðar unglingauppreisnir, stefnuleysi nýrrar kynslóðar, stórmennskubrjálæði Íslendinga og tilgerð aktívismans var meðal umfjöllunarefna Blótgæla.
Blótgælur
„fyrst tökum við hundrað og einn, svo tökum við Berlín“ segir í ljóðinu „Kuldakast í mars“ en þar hefur stormurinn skollið á „eins og hnefahögg“, „og á börunum drekkja unglingarnir stuttbuxnaklæddum vonum“. Ljóðið er einskonar ákall á unglingauppreisn, „í dag verður hefnt fyrir allt og ekkert“, en er jafnframt háðsádeila á slíka, eins og kemur fram í línunni: „kallið út skæruliðana / sem iða í skólaleikritum“. Aðallega býr í ljóðinu einskonar svartur húmor, kaldhæðni í bland við sjálfsháð, því ljóðmælandi er meðvitaður um að vera hluti af þeirri máttvana unglingauppreisn sem hann gerir grín að.