Beint í efni

Kristín Ómarsdóttir

Æviágrip

Kristín Ómarsdóttir er fædd 24. september 1962 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Flensborg í Hafnarfirði 1981 og stundaði síðan nám í íslensku, almennri bókmenntafræði og spænsku við Háskóla Íslands. Kristín hefur dvalist í Kaupmannahöfn og Barcelona en býr nú og starfar í Reykjavík.

Kristín hefur jöfnum höndum fengist við ljóða- og skáldsagnagerð, smásögur og leikritun. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín. Skáldsagan Elskan mín ég dey tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 1999 og leikrit hennar, Ástarsaga 3, var tilnefnt til Norrænu leikskáldaverðlaunanna. Árið 2005 fékk hún Grímuverðlaunin, sem leikskáld ársins, fyrir leikritið Segðu mér allt. Fyrir ljóðabókina Sjáðu fegurð þína hlaut hún Fjöruverðlaunin í flokki fagurbókmennta árið 2008. Hún hefur fengið fjölda tilnefninga til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, nú síðast fyrir skáldsöguna Milla (2012) og svo árið 2017 fyrir ljóðabókina Kógulær í sýningarglugganum. Hún hlaut Maístjörnuna, ljóðaverðlaun RSÍ og Landsbókasafns, árið 2018 fyrir Kóngulær í sýningarglugganum. Kristín hefur einnig unnið að myndlist, sýnt teikningar sínar og tekið þátt í sýningum þar sem hún hefur unnið með ólík form: myndbönd og skúlptúra.

Bækur eftir Kristínu hafa verið þýddar á sænsku, frönsku og finnsku og ljóð hennar hafa birst í erlendum safnritum.

Mynd af höfundi: Sveinbjörg Bjarnadóttir.