Katrínarsaga
Lesa meiraAukaverkanir
Lesa meira
Aukaverkanir
Á “Nýársnótt” nenna kýrnar ekki lengur að tala, þær eru svo uppteknar við að hlusta á fréttir “um niðurskurð í mjólkur- og kálfakjötsframleiðslu.” Sú eina sem tjáir sig er Ljómalind, en hún fer þó ekki með þekkt kvæði heldur muldrar með sjálfri sér: „Sama tuggan“. Eins og þessi lýsing gefur til kynna er þjóðsagan í nútímabúningi viðfangsefnið í smásagnasafninu Aukaverkanir eftir Halldóru Kristínu Thoroddsen. Bókin er nokkuð frábrugðin fyrri skrifum höfundar en hún hefur sent frá sér þrjár ljóðabækur og eina bók með stuttum prósum. Hér ræðst hún í all metnaðarfullt verkefni sem er að færa nútímalíf í annálabúning, oftar en ekki með pólitískum vísunum í samtímamálefni.