Æviágrip
Furðufjall : Stjörnuljós
Lesa meiraÁlfastúlkan Íma situr fangin ofan í gömlum hallarrústum þegar hvítur köttur birtist skyndilega og leiðir hana djúpt inn í iður fjallsins. Andreasi er rænt af álfunum en verra er þó að erkióvinur hans, prinsinn, hefur fundið Hulinseyju og hyggur á hefndir. Framtíð eyjunnar er því í höndum Ímu og Andreasar, sem þurfa að ljúka upp leyndardómum fjallsins og sameina íbúana gegn óvinunum.Sláturtíð
Lesa meiraGaldra-Dísa
Lesa meiraPúkinn ásótti Dísu í draumum alla nóttina. Atvikið í tónleikasalnum hafði djúp áhrif á ungu konuna og henni leið einhvern veginn eins og hún hefði óvart kallað djöfulinn til sín, meðvitað eða ómeðvitað. Ef þetta var þá djöfull.Drauga-Dísa
Lesa meiraSteinskrípin: hryllingsævintýrir
Lesa meiraKöttum til varnar
Lesa meiraSteindýrin
Lesa meira
Átök í álfheimum
Sagan er margslungin og spennandi og líkt og í mörgum fantasíum má greina í henni allegoríu, eða líkingasögu, þar sem hópur fólks flýr ofríki og sest að í fjarlægu landi þar sem allt er þeim framandi. Þó að vel sé tekið á móti þeim í fyrstu er ekki allt eins og það virðist og koma þeirra leiðir til ágreinings meðal íbúa.. . . .
Galdra-Dísa
Hvern dreymir ekki um að kunna að galdra til að gera lífið aðeins litríkara og meira spennandi? Það væri stundum ekkert leiðinlegt og hin rammgöldrótta Dísa, sem er aðalpersónan í Galdra-Dísu eftir Gunnar Theodór Eggertsson, leyfir sér af og til að nýta krafta sína til þess að skemmta sér og öðrum. Hún passar sig samt að aðrir verði ekki varir við hæfileika hennar, því hún þykir víst nógu skrítin fyrir. Galdra-Dísa er önnur bókin um Dísu en í þeirri fyrri, Drauga-Dísu sem kom út fyrir tveimur árum, fengum við að fylgja henni í gegnum háskalegt ævintýri þar sem hún flakkaði í tíma og kynntist Íslandi í fortíðinni, barðist við skrímsli og seiðkarla og ýmislegt fleira. Hún lærði líka að nota krafta sína til góðs en kennarinn hennar, Þóra gamla, átti heima í fortíðinni og Dísa því nokkuð ein á báti í nútímanum með þessa óvenjulegu hæfileika sína. Hún hefði gjarnan viljað læra meira hjá Þóru en verður nú að reyna að klóra sig fram úr þessu öllu saman sjálf.
Drauga-Dísa
Tilhugsunin um að geta ferðast í tíma hefur heillað marga enda býður tímaflakk upp á endalausa möguleika. Kannski væri hægt að breyta fortíðinni eða sjá framtíðina, eða að upplifa merkilega sögulega atburði og sjá hvernig fólk lifði í raun fyrir mörg hundruð árum. Í Drauga-Dísu eftir Gunnar Theodór Eggertsson verður þessi draumur margra að veruleika þegar hin 14 ára gamla Dísa uppgötvar tímahlið í sumarbústaðarlandi foreldra sinna. Gunnar Theodór hlaut íslensku barnabókaverðlaunin fyrir bók sína Steindýrin árið 2008 en sjálfstætt framhald hennar, Steinskrípin, kom út árið 2012.