Beint í efni

Guðrún Eva Mínervudóttir

Æviágrip

Guðrún Eva Mínervudóttir fæddist í Reykjavík 17. mars 1976. Hún stundaði nám í ýmsum framhaldsskólum á árunum 1993 til 1996 og vann jafnframt sem barþjónn og við framreiðslu á veitingahúsum. Hún hóf nám í heimspeki við Háskóla Íslands 1997 og stundaði það með hléum þar til hún lauk prófi 2007. Hún var blaðamaður í lausamennsku hjá Helgarpóstinum 1996 - 1997 en sinnir nú ritstörfum eingöngu.

Fyrsta bók Guðrúnar Evu, Sóley sólufegri, kom út í mjög takmörkuðu upplagi árið 1998 en sama ár gaf Bjartur út eftir hana smásagnasafnið Á meðan hann horfir á þig ertu María mey og vakti það mikla athygli. Síðan hafa fleiri skáldsögur bæst í hópinn, auk ljóðabókar og heimspekilegra smásagna fyrir börn sem Námsgagnastofnun gaf út. Guðrún Eva hefur einnig þýtt verk eftir erlenda höfunda.

Guðrún Eva hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2011 fyrir skáldsöguna Allt með kossi vekur. Hún hefur einnig verið tilnefnd fyrir skáldsögurnar Fyrirlestur um hamingjuna árið 2000, Skaparann (2008) og Skegg Raspútíns 2016. Sagan af sjóreknu píanóunum var tilnefnd til Menningarverðlauna DV í bókmenntum 2002 og Guðrún Eva hlaut verðlaunin árið 2005 fyrir skáldsögu sína, Yosoy. Fyrir Ástin Texas hlaut Guðrún Eva Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, árið 2019.

Mynd af höfundi: Elene Torre (CC BY-SA 2.0)