Beint í efni

Guðbergur Bergsson

Æviágrip

Guðbergur Bergsson fæddist 16. október árið 1932 í Grindavík. Hann lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1955, hélt síðan til náms á Spáni og lauk prófi í spænskum fræðum, bókmenntum og listasögu frá La Universidad de Barcelona 1958.

Fyrstu bækur hans, skáldsagan Músin sem læðist og ljóðabókin Endurtekin orð komu út árið 1961, en síðan hefur hann sent frá sér fjölda bóka af ýmsum toga, smásögur, skáldsögur, barnabók, skáldævisögur og fleira. Auk þess hefur hann skrifað greinar um bókmenntir, listir og þjóðfélagsmál í dagblöð og tímarit. Hann er einn afkastamesti þýðandi okkar úr spænsku og hefur átt stóran hlut í að kynna spænsku- og portúgölskumælandi höfunda hér á landi. Bækur Guðbergs hafa verið þýddar á fjölmörg mál og hefur skáldsagan Svanurinn vakið mikla athygli víða um heim. Kvikmynd Ásu Hjörleifsdóttur sem byggð er á bókinni var frumsýnd 2017 en hún ber sama titil. 

Guðbergur hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir ritstörf sín. Hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 1992 og 1998 auk þess að hafa verið tilnefndur til þeirra 1993 og 1997. Guðbergur hlaut Norræn verðlaun sænsku bókmenntaakademíunnar árið 2004.

Mynd af höfundi: Jóhann Páll Valdimarsson.