Kokkáll
Lesa meira
Kokkáll
Dóri DNA hefur átt margbrotinn feril sem listamaður. Hann hefur verið rappari, ljóðskáld, dramatúrg, handritshöfundur og nú skáldsagnahöfundur, en Kokkáll er hans fyrsta skáldsaga. Sagan er ekki síður margbrotin en ferill Dóra og eru þemu hennar æði mörg. Í nýlegum þætti Kiljunnar sagði Guðrún Baldvinsdóttir að bókin væri „fyrst og fremst um karlmennskuna“, og er það ekki úr lausu lofti gripið eins og vikið verður að síðar. Angar sögunnar eru þó fjölmargir og meðferð hennar á viðkvæmum málefnum gæti vel vakið ríkara umtal en hingað til hefur skapast svo sem um dulbúna og lítt dulbúna kynþáttafordóma og málefni fatlaðra.