Það sem ekki drepur mann
Lesa meira
Það sem ekki drepur mann
Bók Davíðs Lagercrantz, Það sem ekki drepur mann, er kynnt sem fjórða bókin úr smiðju Stiegs Larsson, en er það þó ekki, þetta er einfaldlega nýtt verk sem byggir á persónum og áhersluatriðum úr hinni frægu trílógíu sænska blaðamannsins sem lést langt um aldur fram. Það er sannarlega ekki öfundsvert hlutverk að skrifa bók inn í þessa seríu, enda margt sem gengið hefur á. Annarsvegar nutu glæpasögur Larssons fádæma vinsælda og nokkuð meiri virðingar en almennt gerist og gengur með verk af þessu tagi. Það út af fyrir sig gerir eftirfylgninga ekki auðvelta, jafnvel þó um sama höfund væri að ræða. Hinsvegar spruttu miklar fjölskyldudeilur upp í kjölfar dauða Larssons, svo hatrammar og skrautlegar að þær eru í raun efni í heila bók. Það er inn í þessi átök um höfundarrétt sem fjórða bókin er skrifuð og móttökurnar hljóta að markast eitthvað af því.