Hafnfirðingabrandarinn
Lesa meiraFlugan sem stöðvaði stríðið
Lesa meira
Hafnfirðingabrandarinn
Klara er fimmtán ára gömul Hafnarfjarðarmær sem er skilin eftir í umsjá ömmu sinnar á meðan foreldrarnir fara í heilsubótarferð til sólarlanda. Hún er ekkert yfir sig hrifin af þessari ráðstöfun í fyrstu en daglegt líf hins dæmigerða unglings, þar sem heilinn er á yfirsnúningi allan daginn og alltaf eitthvað dramatískt að gerast, verður fljótlega til þess að hún er nánast búin að gleyma því að þau séu til. Á meðan hún reynir að komast að því hvort amma hennar sé raunverulega elliær, eins og foreldrana grunar, veltir Klara fyrir sér strákum, vinkonum sínum, bekkjarfélögum og fjölskyldu.
Flugan sem stöðvaði stríðið
Stundum er maður orðinn svo samdauna umheiminum að maður hættir að taka eftir honum. Stundum eru litlu hlutirnir orðnir svo ósýnilegir að maður man ekki lengur eftir því að þeir séu til og stundum þarf ekki nema litla húsflugu til að breyta öllu saman. Hver pælir svo sem í húsflugu? Íslensku barnabókaverðlaunin í ár hlaut Bryndís Björgvinsdóttir fyrir bókina Flugan sem stöðvaði stríðið og er hún vel að þeim verðlaunum komin. Bókin er ekki löng, rétt rúmar 100 blaðsíður en hefði alveg mátt vera lengri því sagan er bæði skemmtileg og grípandi svo ekki sé talað um frumleg.