Bíldshöfði
Lesa meira
Djöflastjarnan
Lesa meiraNemesis
Lesa meira
Bíldshöfði
Titillinn fjórðu ljóðabókar Bjarna Gunnarssonar er útskýrður aftast í bókinni í kafla sem ber heitið „Úr alfræðinni“. Ég hef sennilega ekki verið sú eina að sjá fyrir mér götu í 110 Reykjavík þegar ég heyrði titilinn fyrst nefndan og ímynda mér að innviðir bókarinnar þræddu bílasölur og sveitta hamborgarastaði. Svo er ekki. Bjarni skapar ákveðið samhengi með því að setja saman orðin bíldur og höfði sem ramma inn þema bókarinnar. Bíldur vísar hér til gamals lækningaáhalds notað til að tappa af blóði í þeim tilgangi að losa líkamann við óholla vessa og kvilla.