Ekkert elskan, ég er bara að tala við köttinn
Lesa meiradrabb
Lesa meira
Ekkert elskan, ég er bara að tala við köttinn
Hvort rétt er að skilgreina Ekkert, elskan, ég er bara að tala við köttinn sem ljóðabók er spurning út af fyrir sig þó textinn sé sannarlega ljóðrænn og innihaldi fjölda ljóða. Kannski væri allt eins rétt að kenna bókina við lýríska essay-ju, það sjaldséða form í íslenskum bókmenntum, eða láta það einfaldlega eiga sig að reyna að troða henni á tiltekinn bás. Hér ægir í það minnsta mörgu saman, prósa, ljóðum, tilvitnunum og ritgerðum sem og heimspekilegum og bókmenntafræðilegum hugleiðingum og athugunum. Það er því allt eins gott að sleppa því að setja sig í ákveðnar stellingar fyrir lesturinn en reyna þess í stað að hvíla í textanum á þeim stað sem hann er það sinnið.
drabb, Að malbika í rigningu, Dóttir sjóntækjafræðingsins
Dóttir sjóntækjafræðingsins, Að malbika í rigningu og drabb eru innbyrðis ólíkar en hafa allar margt að segja lesandanum. Þær benda okkur á nýjar leiðir til að hugsa um heiminn sem við lifum í, til að skoða hvaðan við fáum upplýsingar, hvernig við vinnum úr þeim og hvað við sköpum með þeirri vinnu. Ég hlakka til að sjá hvað kemur næst, bæði frá þessum nýju skáldum og frá Endahnútum útgáfu..