Beint í efni

Viðurkenning Hagþenkis

Viðurkenning Hagþenkis hefur verið veitt árlega síðan 1987. Samkvæmt skipulagsskrá um viðurkenninguna, sem samþykkt var á aðalfundi félagsins 1993, skal veita hana fyrir samningu fræðirita, kennslugagna, aðra miðlun fræðilegs efnis eða rannsóknir. Heimilt er að veita viðurkenningu fyrir eitt afmarkað verk frá því ári, sem viðurkenningin er miðuð við, eða eldra verk. Einnig er heimilt að veita viðurkenningu fyrir mikilsvert framlag á lengra tímabili. Við veitinguna skal í senn tekið tillit til frumleika og fræðilegs eða menningarlegs gildis verkanna.

Viðurkenningin felst í viðurkenningarskjali og fjárhæð samkvæmt ákvörðun félagsfundar hverju sinni og er upphæðin nú 1.250.000kr.

Sérstakt viðurkenningarráð annast veitingu viðurkenningarinnar. Í því eiga sæti fimm fulltrúar skipaðir af stjórn félagsins til tveggja ára í senn. Skulu a.m.k. tveir koma úr röðum virkra félagsmanna. Gæta skal að því, að fulltrúar komi af sem ólíkustum fræðasviðum og séu sérfræðingar hver á sínu sviði.

Frá árinu 1994 hefur verið skráð á viðurkenningarskjal greinargerð í fáeinum setningum og frá árinu 2006 hefur viðurkenningaráðið tilnefnt tíu fræðirit eða höfunda sem koma til greina.

2020

Pétur Ármannsson: Guðjón Samúelsson húsameistari. Hið íslenska bókmenntafélag.
„Vandað og ítarlegt yfirlitsrit um ævi og verk Guðjóns Samúelssonar. Verðugur minnisvarði um manninn sem mótaði byggingarlist og skipulagsmál hins nýsjálfstæða Íslands."

2019

Björk Ingimundardóttir: Prestaköll, sóknir og prófastsdæmi á Íslandi I–II. Þjóðskjalasafn Íslands.
„Yfirgripsmikið uppflettirit ásamt kortum sem auðveldar yfirsýn yfir sögu landsins og á eftir að nýtast í margvíslegum rannsóknum um langan aldur. Sagnfræðilegt stórvirki."

2018

Kristín Svava Tómasdóttir: Stund klámsins. Klám á Íslandi á tímum kynlífsbyltingarinnar
„Brautryðjandaverk um sögu kláms og kynverundar á Íslandi sem byggir á afhjúpandi rannsóknum á vandmeðförnu efni."

2017

Steinunn Kristjánsdóttir: Leitin að klaustrunum – klausturhald á Íslandi í fimm aldir
„Með látlausum, en jafnframt einlægum frásagnarstíl, gefur [Steinunn] lesandanum færi á að skyggnast inn í heim og huga fræðimanns og fylgja honum eftir við hvert fótmál.“

2016

Viðar Hreinsson. Jón lærði og náttúrur náttúrunnar.
„Með nærfærnum hætti er fjallað um ævintýralegt lífshlaup manns á mörkum forneskju og nútímafræða í samhengi við evrópska vísindasögu.“

2015

Páll Baldvin Baldvinsson: Stríðsárin 1938–1945
„Í þessu umfangsmikla verki er dregin upp fjölbreytt og áhrifarík mynd af ljósum og dökkum hliðum stríðsáranna, samfélagslegum átökum og örlögum einstaklinga.“

2014

Guðrún Kristinsdóttir (ritstj.): Ofbeldi á heimili. Með augum barna
„Merkilegt brautryðjandaverk sem á ríkst erindi við kennara, foreldra og alla sem láta sér annt um börn og velferð þeirra.“

2013

Hjörleifur Stefánsson: Af jörðu - íslensk torfhús
„Efnismikið og heilsteypt ritverk sem opnar augu lesandans fyrir þætti torbæjanna í  íslenskum menningararfi.“

2012

Jón Ólafsson: Appelsínur frá Abkasíu: Vera Hertzsch, Halldór Laxness og hreinsanirnar miklu
„Áhrifamikil og gagnrýnin greining á kommúnismanum og Gúlagi Sovétríkjanna sem afhjúpar varnarleysi hins almenna borgara.“

2011

Sigríður Víðis Jónsdóttir: Ríkisfang: ekkert – flóttinn frá Írak á Akranes
„Metnaðarfullt verk sem samþættir með upplýsandi og áhrifamiklum hætti lífshlaup einstaklinga og sögulega atburði sem þeir hafa litla sem enga stjórn á.“

2010

Una Margrét Jónsdóttir: Allir í leik. Söngvaleikir barna I - II
„Menningarsögulegt stórvirki um söngvaleiki barna á 20. öld í tali, tónum og látbragði með samanburði við eldri hefðir á Íslandi og leiki í nágrannalöndum.“

2009

Pétur Gunnarsson: ÞÞ í forheimskunnar landi og ÞÞ í fátæktarlandi
„Þar sem brugðið er skærri birtu á líf og lifnað eins helsta rithöfundar Íslendinga með þeirri alvörublöndnu kímni sem hæfir viðfangsefninu.“

2008

Sigrún Helgadóttir: Jökulsárgljúfur - Dettifoss, Ásbyrgi og allt þar á milli
„Fyrir að gefa lesendum lykil að stórbrotnu svæði, þar sem afar vel er fléttað saman sögu, náttúrufræði og bókmenntum.“

2007

Þorleifur Hauksson: umsjón með útgáfu og ritun formála Sverris sögu
„Fyrir yfirburða þekkingu á íslenskri stílfræði sem kristallast í vandaðri útgáfu sérstæðrar fornsögu.“

2006

Gunnar Jónsson, Jónbjörn Pálsson og Jón Baldur Hlíðberg: Íslenskir fiskar
„Fyrir að hafa dregið nytjaskepnur og furðukvikindi úr sjó og upp á bókarsíður, með snilldarlegum myndum og ljósu máli.“ 

2005

Helgi Hallgrímsson og Jón Þorvarðarson
„Fyrir að hafa skilað flóknum fræðum og torræðum viðfangsefnum á ljósan og lifandi hátt til lesenda bóka sinna og opnað þeim sýn inn í fjölbreyttan heim vísindasögu, reiknilistar, raungreina og átthagafræði.“

2004

Jóhanna Kristjónsdóttir
„Fyrir að veita sýn inn í framandi menningarheim og eyða með því vanþekkingu og fordómum.“

2003

Viðar Hreinsson fyrir Ævisögu Stephans G. Stephanssonar
„Þar sem hann opnar lesendum heim skáldsins með næmleika, traustri fræðimennsku og alþýðlegri framsetningu.“

2002

Jón Hilmar Jónsson
„Fyrir að greiða leið inn í myndríka veröld tungunnar.“

2001

Jón Karl Helgason
„Fyrir vandaða fræðimennsku sem byggir brú milli margmiðlunar nútímans og sagnaheims fortíðar.“

2000

Hallgerður Gísladóttir og Nanna Rögnvaldardóttir
„Fyrir merk og vönduð grundvallarrit um matargerð og matargerðarlist, þjóðlega og alþjóðlega.“

1999

Jón Baldur Hlíðberg
„Fyrir að miðla fræðum á trúverðugan og heillandi hátt í myndum.“

1998

Ragnheiður Gyða Jónsdóttir
„Fyrir lifandi og áhugavekjandi kynningu menningarefnis á Rás 1 í Ríkisútvarpinu.“

1997

Iðunn Steinsdóttir og Sigurður Pálsson
„Fyrir að semja vandað og vekjandi námsefni í kristnum fræðum.“

1996

Ritstjórar Orðstöðulykils með texta Íslendingasagna: Bergljót Soffía Kristjánsdóttir, Eiríkur Rögnvaldsson, Guðrún Ingólfsdóttir, Örnólfur Thorsson
„Fyrir að opna nýjar leiðir að texta Íslendingasagnanna og rannsóknum á þeim með því að birta textann í tölvutækri mynd ásamt orðstöðulykli.“

1995

Guðmundur Páll Ólafsson
„Fyrir að birta með fágætum hætti fróðleik um náttúru Íslands og sýna fegurð hennar og gildi.“

1994

Unnsteinn Stefánsson
„Fyrir mikilsverð fræðistörf og í tilefni af útkomu ritverksins Haffræði I. og II.“

1993

Vilhjálmur Árnason

1992

Elsa E. Guðjónsson

1991

Lúðvík Kristjánsson

1990

Einar Sigurbjörnsson

1989

Gunnar Karlsson og Bókaútgáfan Bjallan

1988

Kristmundur Bjarnason

1987

Helgi Hallgrímsson