Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness

Á Bókmenntahátíð í Reykjavík í apríl 2019 var tilkynnt um að veitt yrðu ný alþjóðleg bókmenntaverðlaun kennd við Halldór Laxness. Forsætisráðuneytið, mennta- og menningamálaráðherra, Íslandsstofa, Forlagið, sem er útgefandi verka Halldórs Laxness á Íslandi, Gljúfrasteinn og Bókmenntahátíð í Reykjavík standa að verðlaununum.
Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs laxness
2019
Ian McEwan
Bókaútgáfan Vaka – Helgafell stofnaði árið 1995 til Bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness í samráði við fjölskyldu skáldsins. Megintilgangur verðlaunanna var að efla íslenskan sagnaskáldskap og stuðla þannig að endurnýjun íslenskrar frásagnalistar.
Verðlaunin voru veitt árlega að hausti fyrir nýja og áður óbirta skáldsögu eða smásagnasafn. Verðlaunabókin kom út sama dag hjá Vöku – Helgafelli.
Bókmenntaverðlaun Halldórs laxness
2004
Gerður Kristný: Bátur með segli og allt
2002
Ari Trausti Guðmundsson: Vegalínur
2001
Bjarni Bjarnason: Mannætukonan og maður hennar
2000
Gyrðir Elíasson: Gula húsið
1999
Engin verðlaun veitt
1998
Sindri Freysson: Augun í bænum
1997
Eyvindur Eiríksson: Landið handan fjarskans
1996
Skúli Björn Gunnarsson: Lífsklukkan tifar : smásögur
1995
Engin verðlaun veitt