Beint í efni

Sleipnir

Sleipnir er lestrarfélagi barnanna.

Komdu með á hugarflug

Bókmenntaborgin hefur gert áttfætta goðsagnahestinn Sleipni að sérlegum lestrarfélaga sínum og allra barna.  Sleipnir er þeim töfrum gæddur að geta flogið á milli heima og er þannig táknmynd ferðalagsins og hugarflugsins sem bóklestur býður okkur upp á.  Sleipnir er því enginn venjulegur hestur, hann er í raun tákn skáldskaparins sjálfs, hinn norræni skáldfákur.

Í nafni Sleipnis tekur Bókmenntaborgin þátt í verkefnum sem snúa að lestrarhvatningu og skapandi starfi barna og ungmenna.  

Hver er Sleipnir?

Í goðsögunni er Sleipnir afkvæmi Loka að móðerni og jötnahestsins Svaðilfara að faðerni. Loki brá sér í líki hryssu til að lokka Svaðilfara burt frá Ásgarði og er hinn áttfætti Sleipnir afrakstur þessa ævintýris. Sleipnir þýðir sá sem rennur hratt áfram. Hann er hestur Óðins og sagður allra hesta bestur og hefur hann rúnir ristar á tennur sér.

Lestrarfélaginn

Lestrarfélaginn Sleipnir hefur slagorð sitt flúrað á sig: „Komdu með á hugarflug“. Hann er framhleypinn og ögrandi húmoristi sem er ófeiminn við að sýna hvað í honum býr, en á sama tíma ljóðrænn og yfir honum er ævintýraljómi. 

Sem lestrarfélagi barnanna stendur Sleipnir að ýmsum lestarhvetjandi verkefnum á vegum Bókmenntaborgarinnar fyrir yngri kynslóðirnar. Hans fyrsta verkefni var að bjóða börnum í ratleik í kringum Reykjavíkurtjörn á Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2012. Þar gátu börn og foreldrar leikið sér að því að leysa léttar þrautir tengdar textum úr barnabókum. Sleipnir bauð einnig börnum til sín í Sleipnisstofu í Ævintýrahöllinni sem var í Iðnó á meðan hátíðin stóð yfir. Síðan hefur Sleipnir hitt fjölda barna á öllum aldri og árið 2015 gaf Bókmenntaborgin út bókina Vetrarævintýri Sleipnis eftir Gerði Kristnýju og Gunnar Karlsson, sem ætluð er börnum á leikskólaaldri, og 2019 bókina Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð eftir Ævar Þór Benediktsson og Gunnar Karlsson, sem ætluð er grunnskólabörnum á miðstigi. 

Á sumrin minnir Sleipnir börn á að lesa sér til ánægju og hvetur þau til að taka þátt í sumarlestri Borgarbókasafns Reykjavíkur. Á veturna hitta leikskólabörn hann í sögustundum og leikskólar geta nýtt sér hugmyndabanka sem fylgir bókinni sem Gerður Kristný og Gunnar unnu fyrir Bókmenntaborgina. 

Lestrarfélaginn Sleipnir er skapaður af Gunnari Karlssyni myndlistarmanni og Þórunn María Jónsdóttir búningahönnuður blés lífi í hann með stórkostlegum búningi.

Vetrarævintýri Sleipnis

Vetrarævintýri Sleipnis eftir Gerði Kristnýju og Gunnar Karlsson hefur verið þýtt á ensku, pólsku og sænsku svo fleiri börn geti kynnst lestrarfélaga barnanna og hans fyrsta ævintýri.

Hér fyrir neðan getur þú sótt PDF-skrá með þýðingum. 

Sleipnir: Enska

Sleipnir: Sænska

Sleipnir: Pólska

Nemandapakki fyrir grunnskóla

Reykjavík bókmenntaborg UNESCO, í samstarfi við Félag fagfólks á skólabókasöfnum, hefur útbúið nemendapakka fyrir grunnskóla. Efnið er ætlað skólabókasöfnum og/eða kennurum sem geta nýtt það í kennslu og almenna lestrarhvatningu fyrir börn. 

Skólabókasöfn í Reykjavík fá bækurnar Vetrarævintýri Sleipnis og Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð gefins frá Bókmenntaborginni og var bókunum dreift í skólana í mars 2019. Vetrarævintýri Sleipnis eftir Gerði Kristnýju er ætluð fyrir 1. og 2. bekk. Áður hafa börn í borginni kynnst þessu ævintýri á lestrarstundum fyrir leikskólabörn á Borgarbókasafninu, en nú geta þau sjálf fengið að lesa bókina. Síðan hefur rithöfundurinn Ævar Þór Benediktsson skrifað nýtt ævintýri um Sleipni, Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð. Bókin í prentformi er aðeins aðgengileg til láns í gegnum skólabókasöfn en hún er líka til sem hljóðbók. Bókin hentar börnum frá elsta hópi yngsta stigs og upp úr.

Verkefni

Verkefni og myndbönd og hljóðbók

Bókmenntaborgin hefur einnig útbúið verkefni og litablöð fyrir 1. bekk og bókamerki og límmiða sem starfsfólk skólasafna og grunnskóla getur nýtt sér við lestrarhvatningu fyrir 2. og 3. bekk. Að auki eru til tvö stutt myndbönd sem skólar og bókasöfn geta nýtt sér að vild.

Fyrra myndbandið er hugsað fyrir 1. bekk og  kynnir það töfra skólabókasafna og það seinna er lestrarhvatning frá Ævari Þór þar sem hann kynnir bókina sína Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð. Efnið er skólum í Reykjavík að kostnaðarlausu, skólabókasöfn utan Reykjavíkur geta haft samband við Bókmenntaborgina og keypt pakkann. 

Sleipnir og stórhættulega fjölskyldutréð er svo líka til sem hljóðbók í upplestri Ævars

Skólasafnakennarar hafa tekið námsefninu vel og nýta í safnkennslu hjá yngsta stigi grunnskóla. 

„Það er svo þénugt að fá í hendurnar tilbúið, vel hugsað og vel útlítandi efni sem hægt er að nota beint með nemendum.“
Inga Lára Birgisdóttir, skólasafnakennari í Austurbæjarskóla.

Verkefni fyrir 1. bekk - Sleipnir á skólabókasafninu