Bókamessa í Bókmenntaborg
Á Bókamessu í Bókmenntaborg koma saman bókaútgefendur, höfundar og lesendur og eiga saman helgi þar sem orðlistin er í öndvegi.

Glóðvolgar bækur
Fyrsta Bókamessa í Bókmenntaborg var haldin árið 2011 í Ráðhúsinu og Iðnó. Síðan þá hefur Bókamessa vaxið ár frá ári og er nú einn af stóru viðburðunum í bókmenntalífi borgarinnar. Bókamessa flutti í Hörpu árið 2016 og leggur þar undir sig Flóa.
Fjölbreytt og skemmtileg bókmenntadagskrá fyrir alla fjölskylduna er í tengslum við Bókamessu og lesendur geta nælt sér í nýjar bækur á góðu verði beint frá útgefenda. Verkefnið er samstarfsverkefni Bókmenntaborgarinnar og Félags íslenskra bókaútgefenda.
Bókamessa árið 2022 er dagana 26.-27. nóvember.
