Jump to content
íslenska

Hvaðan - þaðan

Hvaðan -  þaðan
Author
Eyvindur P. Eiríksson
Publisher
Letur
Place
Reykjavík
Year
1978
Category
Poetry

Úr Hvaðan - þaðan:

1.2.6.

Vísir Vísir
besti vinur bissnessmannsins.
Tíminn er peningar
Vísir veldur streitu.

Kona barin í Bankastræti.
Flýttu þér, flýttu þér
Vísir veldur þreytu.

Rússar kúga gyðinga.
Framleiðslutími Vísis er tvær og hálf klukkustund
Vísir veldur streitu.

Spörkum bændum og spörum.
Fyrstur með fréttirnar
Vísir veldur þreytu.

Ál og stál og allt fyrir útlendinga.
Seljum allt, kaupum allt
Vísir veldur streitu.

Ert þú á móti frjálsri menningu?
Klukkan tifar, klukkan tifar.
Vísir veldur þreytu.

Takmarkið er
að allir hugsi eins og bissnessmenn
þá græða bissnessmenn.

Vísir veldur streitu STREITU S T R E I T U !

More from this author

Sjálfgefinn fugl I, leikverk (A self-evident bird I)

Read more

Á háskaslóð

Read more

Þar sem blómið vex og vatnið fellur

Read more

Meðan skútan skríður

Read more

Lillilalli og vatnið góða (Lillilalli and the precious water)

Read more

Varstu? (Were you?)

Read more

Landið handan fjarskans

Read more