Rotturnar
Lesa meiraSkuggasaga – Arftakinn
Lesa meiraSkuggasaga: undirheimar
Lesa meira
Rotturnar
Í upphafi bókar fáum við að kynnast unglingunum fjórum, þeim Hildisif, Flexa, Garúnu og Garra en þau eru á leið austur á hálendi þar sem þau hafa ráðið sig í sumarvinnu fyrir fyrirtækið Geislaspan. Þar eiga þau að sinna ýmsu viðhaldi á stígum og skálum sem og öðrum klassískum unglingavinnuverkefnum. Ekkert af þeim er sérstaklega spennt fyrir vinnunni og sumrinu sem bíður þeirra og gamanið kárnar enn frekar þegar þau eru send ásamt sérstökum hópi í afskekktan skála þar sem ekkert símasamband er.
Skuggasaga: undirheimar
Skuggasaga heldur áfram í Skuggasaga: Undirheimar en hún hefst þar sem Saga og Örvar eru saman á flótta á leið norður til Hamravígis, þar sem þau hafa heyrt að Signý haldi sig. Þrátt fyrir ákvörðun um að flýja saman eru Saga og Örvar engir vinir, þau eru sitt af hvorri álfaættinni en ættir þeirra eiga sér erfiða sögu svika sem lita örlög allra afkomenda þeirra og fylla þau vantrausti hvort í garð annars. Dýrin sem þau tengjast fylgjuböndum eru auk þess svarnir óvinir og það hefur áhrif á líðan þeirra nálægt hvert öðru: fylgja Sögu er skuggabaldur, sem er afkvæmi kattar og refs, og fylgja Örvars er hrafn. Þau eru hins vegar bæði hundelt og í lífsháska og sjá að þrátt fyrir allt sé best fyrir þau að vinna saman ætli þau að komast lífs af.
Skuggasaga – Arftakinn
Þjóðasagnaarfurinn hefur veitt mörgum barnabókahöfundum innblástur í gegnum tíðina. Sögur af samskiptum manna og álfa lifa enn góðu lífi í barna- og unglingabókum enda mikinn og áhugaverðan efnivið þar að finna. Skuggasaga - Arftakinn eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur hlaut barnabókaverðlaunin í ár en þar er hugmyndum úr þjóðsögum af íslenskum álfum og furðuverum fléttað saman við hefðir bæði úr norrænum sögum og úr fantasíum.